spot_img
HomeFréttirJóhann Árni og Sigurður Þorsteinsson til Grindavíkur

Jóhann Árni og Sigurður Þorsteinsson til Grindavíkur

 
Samkvæmt heimildum Víkurfrétta, www.vf.is – mun körfuknattleikdeild Grindavíkur ganga frá samningum við þá Sigurð Þorsteinsson og Jóhann Árna Ólafsson í kvöld.
Sigurður hefur legið undir feld undanfarið eftir að ljóst varð að hann myndi ekki leika með Keflvíkingum áfram. Helgi Jónas Guðfinnsson þjálfari Grindavíkur sagði í samtali við Víkurfréttir í dag að Sigurður hefði mætt á æfingu og að hann taldi að viðræður væru á lokastigi. Jóhann Árni Ólafsson mun ekki leika áfram með Njarðvíkingum og mun hann skrifa undir hjá Grindvíkingum mjög fljótlega. Haldinn verður aðalfundur hjá Körfuknattleiksdeild Grindavíkur í kvöld þar sem talið er að gengið verði frá þessum málum.
 
Frétt af www.vf.is 

 

Fréttir
- Auglýsing -