spot_img
HomeFréttirJóhann Árni í heimahaga

Jóhann Árni í heimahaga

 

 

Jóhann Árni Ólafsson mun koma til með að leika með sínu uppeldisfélagi að nýju en Jóhannhefur komist að samkomulagi við Njarðvíkinga sem undirritað var í gærkvöldi.  Jóhann Árni líkt og flestir vita sleit barnskóm sínum í Njarðvíkinni og átti góðu gengi að fagna með yngriflokkum félagsins og þegar líkamsburðir voru nægir var hann fljótur að koma sér í lið meistaraflokks klúbbsins.  Jóhann hélt til Grindvíkinga árið 2011 og hefur leikið með liðinu síðan og vann tvo Íslandsmeistaratitla með liði Grindavíkur. 

"Jóhann er auðvitað uppalinn Njarðvíkingur í  húð og hár og okkur mikið gleðiefni að endurheimta hann aftur í Ljónagryfjunna.  Jóhann er þekkt stærð í deildinni, sterkur varnarmaður og auðvitað hokinn reynslu sem mun nýtast liði okkar vel á komandi leiktíð." sagði Gunnar Örlygsson formaður kkd. UMFN í samtali við Karfan.is þegar samningar voru undirritaðir. 

 

Njarðvíkingar eru nú í óðaönn að leggja lokahönd á lið sitt fyrir komandi tímabil og vantar í raun aðeins lokahnykkinn en það ætti svo sem ekkert að vera leyndarmál að þeir þurfa "kjöt í teiginn" og þar liggur lokapúslið. 

 

Njarðvíkingar hafa því endurheimt nú tvo uppalda leikmenn sína en auk Jóhanns Árna hefur líkt og flestir vita Daníel Guðni Guðmundsson tekið við þjálfun liðsins. 

Fréttir
- Auglýsing -