Martin Hermannsson og Alba Berlin jöfnuðu metin 1-1 gegn Chemnitz Niners í kvöld í undanúrslitum þýsku úrvalsdeildarinnar, 86-64.
Á tæpum 20 mínútum spiluðum skilaði Martin 11 stigum, 4 fráköstum, 6 stoðsendingum og 3 stolnum boltum.
Þriðji leikur liðanna er á dagskrá komandi sunnudag 2. júní.