Íslenska landliðið mætir Tyrklandi kl. 18:30 á morgun í Ólafssal í öðrum leik sínum í undankeppni EuroBasket 2025. Leikurinn er seinni leikur tveggja í þessum fyrsta glugga keppninnar, en síðasta fimmtudag tapaði liðið fyrir Rúmeníu í Constanta, 82-70. Aðgangur á leikinn verður ókeypis í boði Lykils, en Lykill hefur verið öflugur samstarfsaðili KKÍ í meira en 10 ár.
Hérna er lið Íslands í glugganum – Hérna er heimasíða mótsins
Karfan kom við á æfingu hjá liðinu í dag og spjallaði við Jönu Falsdóttur nýliða Íslands um hvernig það sé að koma inn í íslenska hópinn og hvernig henni lítist á andstæðing morgundagsins. Jana hefur á síðustu árum leikið með yngri landsliðum Íslands og hefur á þessu tímabili verið einn af betri leikmönnum Subway deildarinnar með liði Njarðvíkur.
Umfjöllun Körfunnar um íslensku landsliðin er kostuð af Lykil