Tyrkland lagði Ísland í Ólafssal í kvöld í öðrum leik undankeppni EuroBasket 2025, 65-72. Ísland tapaði því fyrstu tveimur leikjum keppninnar og situr í 4. sæti riðilsins á meðan að Tyrkland er í efsta sætinu án taps.
Karfan spjallaði við Jönu Falsdóttur leikmann Íslands eftir leik í Ólafssal. Jana lék í kvöld sinn fyrsta leik fyrir A landslið Íslands. Eftir að hafa setið á tréverkinu allan fyrri hálfleikinn kom hún inn af miklum krafti í seinni hálfleik leiksins.
Umfjöllun Körfunnar um íslensku landsliðin er kostuð af Lykil