Jaleesa Butler hefur spilað sinn síðasta leik fyrir Val en Ágúst Björgvinsson, þjálfari kvennaliðs Vals, hefur ákveðið að skipta um bandaríska leikmann Hlíðarendaliðsins fyrir seinni hluta Dominos-deildar kvenna í körfubolta. www.visir.is greinir frá.
Jaleesa Butler var á sínu þriðja tímabili hjá Ágústi og á sínu fjórða tímabili á Íslandi en hún skilaði ekki sömu tölum og á hinum þremur tímabilum sínum í deildinni.
Jaleesa Butler var með 16,7 stig, 11,9 fráköst og 4,6 stoðsendingar að meðaltali í leik í vetur en Valsliðið vann aðeins 6 af 14 leikjum sínum fyrir mót eftir að hafa verið spáð Íslandsmeistaratitlinum fyrir mót. Butler átti frábæra innkomu í Valsliðið á miðju síðasta tímabili en þá var hún með 20,4 stig og 15,2 fráköst að meðaltali í leik.
Ágúst er búinn að finna nýjan bandarískan leikmann til þess að fylla skarð Butler en sú spilar ekki sömu stöðu. Butler spilar vanalega nálægt körfunni en nú mun Valsliðið tefla fram bandarískum bakverði.
Anna Martin mun leysa Butler af en Martin útskrifaðist úr DePaul-háskólanum síðasta vor. Martin var með 13,8 stig og 2,8 stoðsendingar að meðaltali í 127 leikjum með skólanum.