8:30
{mosimage}
Jakob Sigurðsson átti stórleik og skoraði 21 stig og hitti úr 3 af 3 tveggja stiga, 4 af 5 þriggja stiga og 3 af 4 vítum þegar lið hans Vigo (4-10) sigraði Club Basquet Prat á heimavelli 69-63 í gær.
Jafnfræði var með liðunum í fyrri hálfleik en Vigo tryggði sér sigurinn í þriðja leikhluta. Jakob hlaut 22 í einkunn sem reiknuð er út frá Efficiency jöfnunni og var hæstur allra leikmanna leiksins. Vigo er nú í 17. sæti LEB2 deildarinnar.
Mynd: karfan.is