Jakob Sigurðarson tók sér tíma til að spjalla við okkur á Karfan TV eftir leik í gær þrátt fyrir að tími hans hérlendis væri skammur eftir. Kappinn átti bókað flug til Svíþjóðar ásamt Hlyn Bæringssyni og Peter Öqvist þar sem að lið Sundsvall var farið að lengja eftir þeim köppum.