8:54
{mosimage}
Jakob Örn Sigurðarson er mættur til Ungverjalands eftir landsleiki haustsins þar sem hann lék mjög vel. Hann spilaði sinn fyrsta leik fyrir nýja félagið sitt, Kecskemeti, í æfingamóti á föstudag þegar liðið sigraði ríkjandi meistara í Szolnoki Olaj 82-62.
Jakob átti góðan leik og skoraði 6 stig auk þess að taka 6 fráköst og gefa 4 stoðsendingar.
Mynd: [email protected]