Stjarnan lagði KR í dag í úrslitaleik VÍS bikarkeppninnar í 10. flokks stúlkna, 32-76.
Karfan spjallaði við lykilleikmann úrslitaleiksins Ísold Sævarsdóttur eftir leik í Smáranum. Ísold var frábær fyrir Stjörnuna í úrslitaleiknum, skilaði 18 stigum, 2 fráköstum, 6 stoðsendingum og 8 stolnum boltum.