spot_img
HomeFréttirÍslensku stúlkurnar leiddu Canisius til sigurs

Íslensku stúlkurnar leiddu Canisius til sigurs

Margrét Hálfdanardóttir var stigahæst með 14 stig í 80-50 sigri Canisius á Binghamton. Strax á eftir henni kom Sara Rún Hinriksdóttir með 12 og 3 fráköst en báðar hittu þær afburðavel í leiknum. Canisius hafa nú sigrað tvo leiki og tapað tveimur.

 

Frábær frammistaða Martins Hermanssonar og LIU í seinni hálfleik dugði ekki til en Brooklyn liðið tapaði sínum fyrsta leik í gærkvöldi gegn FIU, 72-80. Martin skoraði 17 stig í leiknum og þar af 13 í seinni hálfleik. Martin bætti við 7 fráköstum og 3 stolnum boltum. LIU hafa því sigrað 3 leiki og tapað einum.

 

Fréttir
- Auglýsing -