Íslenska karlalandsliðið klárar undankeppni HM 2023 nú í lok mánaðar með tveimur leikjum. Fyrri leikurinn er heimaleikur gegn Spáni þann 23. febrúar, en lokaleikur riðlakeppninnar er svo leikur gegn Georgíu ytra. Miðasala gengur vel á leikinn gegn Spáni í Stubb appinu og eru áhorfendur hvattir til að tryggja sér miða tímanlega því það stefnir í að verða uppselt á leikinn.
Liðið ferðast út á föstudeginum eftir leikinn gegn Spáni en seinni leikurinn fer fram sunnudaginn 26. febrúar gegn Georgíu og verður hann leikinn í höfuðborginni Tbilisi og hefst hann kl. 16:00 að íslenskum tíma (20:00 í Georgíu) og verður í beinni útsendingu á RÚV2.
Craig Pedersen landsliðsþjálfari og aðstoðarþjálfarar hans hafa valið 15 manna æfingahóp fyrir leikina framundan.
Áhugavert er að sjá að fyrrum fyrirliði liðsins Hlynur Bæringsson er á nýjan leik kominn í hóp Íslands. Hlynur lagði landsliðsskóna á hilluna árið 2019 eftir um 19 ára, 129 leikja feril fyrir Ísland þar sem liðið fór meðal annars í tvígang á lokamót EuroBasket. Samkvæmt fréttatilkynningu mun það hafa verið að ósk þjálfara liðsins Craig Pedersen sem Hlynur tekur skóna fram á nýjan leik.
Íslenski hópurinn:
Elvar Már Friðriksson · Rytas Vilnius, Litháen (63)
Haukur Helgi Briem Pálsson · Njarðvík (73)
Hilmar Smári Henningsson · Haukar (4)
Jón Axel Guðmundsson · Victoria Libertas Pesaro, Ítalíu (23)
Hlynur Bæringsson · Stjarnan (129)
Kári Jónsson · Valur (30)
Kristinn Pálsson · Aris Leuuwarden, Hollandi (15)
Kristófer Acox · Valur (50)
Ólafur Ólafsson · Grindavík (52)
Ragnar Ágúst Nathanaelsson · Hamar (57)
Sigtryggur Arnar Björnsson · Tindastóll (26)
Styrmir Snær Þrastarson · Þór Þorlákshöfn (7)
Tryggvi Snær Hlinason · Basket Zaragoza, Spáni (56)
Þórir G. Þorbjarnarson · Ovideo, Spáni (9)
Ægir Þór Steinarsson · CB Lucentum Alicante, Spáni (78)
Meiddir: Martin Hermannsson, Valencia á Spáni, og Hörður Axel Vilhjálmsson, Keflavík, eru báðir meiddir að þessu sinni og ekki leikfærir.
Umfjöllun Körfunnar um íslensku landsliðin er kostuð af Lykil