spot_img
HomeFréttirÍslendingaslagur á Spáni

Íslendingaslagur á Spáni

Landsliðsmennirnir Jón Arnór Stefánsson og Haukur Helgi Pálsson mætast í ACB deildinni á Spáni í dag þegar Manresa heimsækir Zaragoza. Nokkur munur er á stöðu liðanna í deildinni en Haukur og Manresa eru á botninum ásamt Cajasol og hafa unnið einn leik á tímabilinu en tapað níu.
 
Jón Arnór og Zaragoza eru í 8. sæti og hafa unnið sex leiki en tapað fjórum. Það er að miklu að keppa fyrir Zaragoza í s.b.v. að vera í 8. sæti eða ofar en átta efstu liðin taka þátt í konungsbikarkeppninni en Zaragoza missti naumlega af þeirri keppni á síðustu leiktíð.
 
Viðureign Zaragoza og Manresa hefst á Spáni kl. 12:15 eða kl. 11:15 að íslenskum tíma.
  
Fréttir
- Auglýsing -