Nú skömmu eftir áramót skrifuðu Körfuknattleiksdeild Njarðvíkur og Íslandsbanki undir samstarfssamning þess efnis að Íslansbanki myndi styrkja yngri flokka starf félagsins, sem einn af aðalstyrktaraðilum . Friðrik Ragnarsson og Sighvatur Gunnarsson undirrituðu samninginn á dögunum og eru Njarðvíkingar hæstánægðir að fá svo sterkan styrktaraðila að yngri flokka starfinu.
Njarðvíkingar afhentu einnig við sama tilefni pening sem safnaðist í ágóðaleik sem leikinnn var 21.des. Jakob Sigurðsson tók við peningagjöfinni af Davíð Páli Viðarsyni stjórnarmanni körfuknattleiksdeildarinnar fyrir hönd líknarsjóðs Njarðvíkurkirkjna.