Undir 16 ára lið drengja leikur þessa dagana á Evrópumótinu í Sarajevo í Bosníu. Í kvöld sigraði liðið sinn fjórða leik á mótinu gegn Búlgaríu, 79-69, og er því komið með þrjá sigurleiki og aðeins einn tapaðan það sem af er móti.
Leikur kvöldsins var í járnum í upphafi, eftir fyrsta leikhluta var jafnt 14-14 og þegar að liðin héldu til búningsherbergja í hálfleik var staðan enn jöfn, 33-33. Í seinni hálfleiknum sýndu íslensku strákarnir svo mátt sinn og megin. Sigldu hægt og bítandi frammúr þeim búlgörku og sigruðu að lokum með 10 stigum, 79-69.
Marínó Pálmason var atkvæðamestur í íslenska liðinu í dag. Skoraði 21 stig og tók 4 fráköst á rúmum 23 mínútum spiluðum.
Með sigrinum eru þeir því komnir í 8 liða úrslit mótsins, þó þeir eigi lokaleik riðilsins eftir, en hann er gegn Kýpur á morgun kl. 19:00
Viðtal:
Upptaka af leiknum: