spot_img
HomeFréttirÍsland talið eiga góða möguleika á að komast á lokamótið - Risastór...

Ísland talið eiga góða möguleika á að komast á lokamótið – Risastór heimaleikur gegn Georgíu 11. nóvember

Ísland tekur á móti Georgíu í 2. glugga seinni hluta undankeppni heimsmeistaramótsins 2023 þar næsta föstudag 11. nóvember. Fyrir leikinn er staða Íslands nokkuð sterk í L riðil, liðið er með fjóra sigra, tvö töp og er í 3. sæti, en efstu þrjú lið riðilsins komast á lokamótið.

FIBA gaf í dag út kraftröðun fyrir þennan næst síðasta glugga undankeppninnar, en þar er Ísland talið 12. sterkasta liðið, fyrir ofan andstæðinga gluggans, bæði Georgíu og Úkraínu, en með sigri gegn þeim báðum nú í nóvember fer liðið langleiðina með að bóka miða sinn á lokamótið sem fer fram haustið 2023.

Um Ísland segir FIBA “Draumur Íslands um að komast á lokamót HM í fyrsta skipti gætu ræst í þessum glugga, þar sem þeir mæta Georgíu í risastórum leik í Reykjavík, en með sigri kæmust þeir tveimur leikjum fyrir ofan þá í undankeppninni. Þeir munu svo ljúka glugganum með útileik gegn Úkraínu”

Miðasala á leikinn gegn Georgíu er í fullum gangi á Stubb (ath öll miðasala fer eingöngu fram þar), en tekið er fram að takmarkað magn miða verður í boði á leikinn. Miðaverð fyrir fullorðna er 2500 kr. á meðan að 15 ára og yngri þurfa að greiða 1000 kr. fyrir miða.

Allar nánari upplýsingar er að finna hér

Hérna er heimasíða undankeppninnar

Hér fyrir neðan má sjá leiki Íslands sem eftir eru í annarri umferð undankeppninnar:

Nóvember 2022:

ÍSLAND-GEORGÍA11. nóvember (heima)
ÚKRAÍNA-ÍSLAND14. nóvember (úti)

Febrúar 2023:

ÍSLAND-SPÁNN23. febrúar (heima)
GEORGÍA-ÍSLAND26. febrúar (úti)

Umfjöllun Körfunnar um íslensku landsliðin er kostuð af Lykil

Fréttir
- Auglýsing -