Undir 20 ára karlalið Íslands mætir Slóveníu kl. 11:00 í dag í þriðja leik sínum á Evrópumótinu í Gdynia í Póllandi. Fyrsta leik mótsins tapaði liðið gegn Litháen á laugardag, en í gær lögðu þeir Svartfjallaland. Leikurinn er sá síðasti í riðlakeppni mótsins, en eftir hann fara öll lið keppninnar í 16 liða úrslitakeppni.