spot_img
HomeFréttirÍsland mætir Noregi á morgun

Ísland mætir Noregi á morgun

13:50

{mosimage}

Íslenska kvennalandsliðið mætir Noregi á morgun í b-deild Evrópukeppni landsliða. Stelpurnar komu til Noregs í dag og munu ná tveimur æfingum þar fyrir leikinn.

Leikurinn hefst klukkan 15:00 að íslenskum tíma og fer fram í Rykkinhallen rétt fyrir utan Osló.

Íslenska liðið á enn möguleika á því að komast uppúr riðlinum og í úrslitakeppni um sæti í A-deildinni. Takist stelpunum að sigra Noreg á morgun komast þær upp að hlið Norðmanna í öðru sæti riðilsins. Efstu tvö liðin í riðlinum komast áfram í úrslitakeppnina. Í lokaumferðinni mæta svo Íslendingar Írum en Norðmenn mæta Hollendingum. Þetta er því gífurlega mikilvægur leikur fyrir íslenska liðið.
.
Ein breyting er á íslenska liðinu frá síðasta leik. Ingibjörg Jakobsdóttir kemur inn í hópinn í staðinn fyrir Svövu Ósk Stefánsdóttur.

www.kki.is

mynd: [email protected]

Fréttir
- Auglýsing -