Undir 20 ára lið kvenna mun mæta Belgíu kl. 17:30 í dag Laugardag 13. júlí í undanúrslitum Evrópumótsins í Búlgaríu.
Í fyrri riðlakeppni mótsins vann liðið tvo leiki og tapaði einum og náði að tryggja sig áfram í 8 liða úrslitin með glæsilegum sigri gegn heimakonum í Búlgaríu síðasta mánudag. Með sigri gegn Írlandi síðasta fimmtudag náði Ísland að tryggja sig í undanúrslit keppninnar, en í hinum undanúrslitaleiknum mætast Holland og Tékkland. Myndir og fréttir frá liðinu munu einnig koma á samfélagsmiðla KKÍ á meðan mótinu stendur.