16:06
{mosimage}
(Hildur Sigurðardóttir gerði 6 stig í dag)
Íslenska kvennalandsliðið í körfuknattleik tapaði stórt gegn Noregi í Sláturhúsinu í Keflavík í dag. Lokatölur leiksins voru 47-69 Norðmönnum í vil. Þetta var annar ósigur liðsin í röð en Ísland tapaði fyrsta leiknum sínum gegn Hollandi.
Birna Valgarðsdóttir var atkvæðamest í íslenska liðinu með 14 stig en Kristine Austgulen gerði 24 stig fyrir Noreg.
Nánar um leikinn síðar…