Undir 20 ára karlalið Íslands lagði Noreg nokkuð örugglega í dag á Norðurlandamótinu í Södertalje, 104-86. Ísland fer því með tvo sigra úr þriggja liða riðil sínum og leika næst á laugardaginn í undanúrslitum mótsins.
Karfan spjallaði við Ísak Örn Baldursson eftir leik í Södertalje, en hann skilaði 4 stigum, 3 fráköstum og 3 stoðsendingum á tæpum 18 mínútum spiluðum í leiknum.
Umfjöllun Körfunnar um íslensku landsliðin er kostuð af Lykil