spot_img
HomeBónus deildinBónus deild kvennaIsabella Ósk með slitið krossband

Isabella Ósk með slitið krossband

Miðherji Breiðabliks, Isabella Ósk Sigurðardóttir, verður líklega ekki meira með á þessu tímabili eftir að hafa slitið krossband á æfingu. Isabella hafði byrjað tímabilið með krafti og var fyrir meiðslin framlagshæsti íslenski leikmaður deildarinnar fram að þessu. Samkvæmt fréttatilkynningu sendir félagið henni baráttu og batakveðjur og vonast til þess að sjá hana sem fyrst aftur á parketinu.

Breiðablik er í neðsta sæti deildarinnar, enn án sigurs eftir fyrstu sex umferðirnar.

 

https://www.facebook.com/kkdbreidabliks/photos/a.278219395636568/1133373433454489/?type=3&theater

Fréttir
- Auglýsing -