Isabella Ósk Sigurðardóttir og South Adelaide Panthers lögðu North Adelaide Rockets í dag í NBL1 deildinni í Ástralíu, 71-55.
Eftir leikinn eru South Adelaide í efsta sæti miðhluta deildarinnar með 12 sigra og 3 töpl það sem af er tímabili.
Á tæpum 23 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Isabella 6 stigum, 9 fráköstum, 2 stoðsendingum, 2 stolnum boltum og 2 vörðum skotum.
Næsti leikur Isabellu og South Adelaide er þann 23. júlí gegn Southern Tigers.