Isabella Ósk Sigurðardóttir og Panseraikos lögðu Kavala í dag í fyrstu deildinni í Grikklandi, 82-72.
Isabella skilaði 20 stigum í leiknum og var stigahæst í liði Panseraikos í leiknum.
Panseraikos er í toppsæti B-deildarinnar með fullt hús stiga eftir fimm leiki.