Isabella Ósk Sigurðardóttir og South Adelaide Panthers máttu þola tap fyrir Norwood Flames í áströlsku NBL1 deildinni, 56-76.
South Adelaide eru eftir leikinn í 2.-3. sæti miðhluta deildarinnar með 8 sigra og 2 töp það sem af er tímabili líkt og West Adelaide Bearcats.
Á rúmum 32 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Isabella 5 stigum, 12 fráköstum, 2 stolnum boltum og vörðu skoti.
Næsti leikur Isabellu og South Adelaiade er þann 25. júní gegn Eastern Mavericks.