{mosimage}
Ingvi Steinn Jóhannsson hefur tekið við körfuknattleiksliði Þróttar í Vogum en liðið keppir í 2. deild. Liðið átti ekki góðu gengi að fagna í 2. deild á síðustu leiktíð en Þróttarar vonast til þess að með tilkomu Ingva að hægt verði að snúa við blaðinu.
Ingvi Steinn á ekki langt að sækja þjálfarahæfileikana en Einar Árni Jóhannsson, bróðir Ingva, er þjálfari Íslandsmeistara Njarðvíkur í Iceland Express deild karla.
{mosimage}