Undir 16 ára stúlknalið Íslands lagði Eistland í dag á Evrópumótinu í Konya í Tyrklandi, 79-76. Liðið hefur því unnið einn leik og tapað einum það sem af er riðlakeppni mótsins.
Fréttaritari Körfunnar í Konya ræddi við þær Ingibjörgu Sigrúnu Svaladóttur og Kristínu Björk Guðjónsdóttur eftir leik um sigurinn, hvernig þeim finnist liðið vera koma saman og hvað þurfi að gerast til að liðið nái í sigur gegn Litháen á morgun.