Stjarnan lagði Tindastól í Umhyggjuhöllinni í kvöld í 16. umferð Subway deildar karla, 79-68. Eftir leikinn eru liðin jöfn að stigum í 6.-8. sæti deildarinnar með 14 líkt og Grindavík, en Stjarnan er efst liðanna þriggja vegna innbyrðisstöðu, Tindastóll í 7. sætinu og Grindavík 8. sæti.
Karfan spjallaði við Inga Þór Steinþórsson aðstoðarþjálfara Stjörnunar eftir leik í Garðabæ.