23:06
{mosimage}
(Lovísa var stigahæst með 22 stig hjá ÍS)
ÍS vann Breiðablik í kvöld í Smáranum í tvíframlengdum leik í Iceland Express-deild kvenna, 62-68.
Með sigrinum er ÍS búin að koma sér vel fyrir í 4. sætinu í deildinni með 4 stig en Breiðablik og H/S eru neðst með 0 stig en þessi lið eiga eftir að mætast.
Hjá Breiðablik skoraði Tiara Harris 33 stig og hjá ÍS var Lovísa Guðmundsdóttir með 22 stig. Þórunn Bjarnadóttir lék í allar 50 mínútur leiksins og endaði hún með tvöfalda tvennu 16 stig og 12 fráköst.
mynd: [email protected]