7:34
{mosimage}
Það var greinilegt að sárt bikartap gegn Haukum um helgina sat enn í Keflavíkurstúlkum í kvöld (gærkvöldi) þegar þær töpuðu fyrir Grindavík í Sláturhúsinu 86-93.
Í upphafi leiks var deyfð yfir heimastúlkum beggja megin vallar þar sem Grindavík fékk mikið af auðveldum körfum eftir einbeitingaleysi í varnarleik og þeirra voru langflest fráköst. Með því er ekkert tekið af Grindvíkingum sem gengu á lagið, spiluðu hraðan bolta og nýttu sínar sóknir vel.
Munurinn fór hátt í 20 stig í fyrri hálfleik þar sem gestirnir gerðu út um leikinn en Keflavík klóraði í bakkann og minnkaði muninn niður í 7 stig undir lokin.
Frétt tekin af www.vf.is
Mynd: karfan.is