spot_img
HomeFréttirIceland Express-deildirnar í kvöld

Iceland Express-deildirnar í kvöld

16:58

{mosimage}

Í kvöld eru 4 leikir í IE-deild karla og 1 í IE-deild kvenna.

Í Borgarnesi taka heimamenn á móti Hamar/Selfoss og er fastlega gert ráð fyrir því að George Byrd spili með H/S. Haukar heimasækja Keflavík, KR fær Fjölni í heimsókn og Íslandsmeistarar Njarðvíkur heimsækja Stólana fyrir norðan. Allir leikirnir hefjast kl. 19:15.

Í Iceland Express-deild kvenna taka Íslandsmeistarar Hauka á móti nýliðum Hamar/Selfoss á Ásvöllum og hefst leikurinn kl. 19:15.

Fréttir
- Auglýsing -