spot_img
HomeNeðri deildir1. deild karlaÍ banni í fyrsta leik úrslitakeppni

Í banni í fyrsta leik úrslitakeppni

Aga- og úrskurðarnefnd KKÍ hefur komist að niðurstöðu í tveimur agamálum sem henni hafði borist til úrlausnar.

Í öðru tilvikinu var leikmaður Snæfells í fyrstu deild karla Juan Luis Navarro dæmdur í eins leiks bann og missir hann því af fyrsta leik úrslitakeppni sinna manna, en Snæfell mun leika fyrsta leik 8 liða úrslita gegn Hamri komandi laugardag í Hveragerði.

Agamál 61/2024-2025

Með vísan til ákvæðis c. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Juan Luis Navarro, leikmaður Snæfells sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik Breiðabliks gegn Snæfelli sem fram fór þann 14. mars 2025.

Agamál  62/2024-2025

Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Guðjón Logason, leikmaður Aþenu/Leiknis, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Aþenu/Leiknis gegn Aftureldingu, sem fram fór þann 20 mars 2025.

Fréttir
- Auglýsing -