Nú þegar styttast fer í undirbúningstímabil flestra liða eru leikmannahópar liðanna að skýrast. Enn er margt óljóst en leikmannamarkaður sumarsins hefur verið ansi tíðindamikill.
Á dögunum gaf Karfan.is út mjög ótímabæra kraftröðun þar sem staðan á liðunum er metin. Í þessum þætti förum við yfir liðin í Dominos deild kvenna ásamt Bryndísi Gunnlaugsdóttur og spáum í spilin.
Umsjón: Ólafur Þór og Davíð Eldur
Efnisyfirlit:
2:00 – 8. – 6. sæti (KR, Skallagrímur, Breiðablik)
15:30 – 5.-3. sæti (Haukar, Snæfell, Stjarnan
24:00 – 2. og 1. sæti (Valur og Keflavík)
32:00 – Hvaða bitar eru eftir á markaðnum?
34:15 – Sjáum við marga erlenda leikmenn í Dominos deild kvenna?
*Ótímabær kraftröðun Dominos deildar kvenna verður birt í fyrramálið