spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaHverja valdi Arnar Guðjóns í byrjunarliðið sitt?

Hverja valdi Arnar Guðjóns í byrjunarliðið sitt?

Fyrrum þjálfarinn Arnar Guðjónsson var gestur í Fyrstu fimm hlaðvarpinu á dögunum, en þar velja leikmenn sitt draumalið leikmanna sem hann hefur þjálfað. Eftir margra ára starf sem þjálfari verður Arnar í fyrsta skipti ekki með lið á næstu leiktíð, en hann yfirgaf Stjörnuna nú í lok síðasta tímabils og er farinn að vinna fyrir KKÍ.

Þrátt fyrir að vera aðeins 37 ára gamall má segja að Arnar hafi þjálfað ansi lengi. Fyrsta starf hans var hjá Sindra 2005, þaðan fór hann svo til FSu 2007, en 2009 lagðist hann í víking til Danmerkur þar sem hann var á mála hjá bæði Aabyhøj og Svendborg þangað til hann kom aftur heim 2018 og tók við Stjörnunni. Þá var hann lengi í þjálfarateymi íslenska landsliðsins og nú síðast 2022-2023 í þjálfarateymi danska landsliðsins. Hér fyrir neðan má sjá hvaða leikmenn hann valdi í sína fyrstu fimm, en í upptökunni fer hann yfir liðið.

Fyrstu fimm

Antonio Porta

Martin Hermannsson

Jón Arnór Stefánsson

Pavel Ermolinski

Hlynur Bæringsson

Sjöttu menn væru Axel Kárason, Ágúst Angantýnsson og Ragnar Nathanaelsson og þjálfari Ágúst Herbert Guðmundsson.

Fréttir
- Auglýsing -