Undir 18 ára lið stúlkna leikur þessa dagana á Evrópumóti í Austurríki. Liðið lék í riðli með Kýpur, Georgíu, Portúgal, Rúmeníu og Finnlandi. Eftir riðlakeppnina fór liðið að leika um sæti á mótinu.
Í dag sigruðu þær lokaleik sinn á mótinu gegn Búlgaríu, 75-71. Leikurinn var upp á sæti 19-20 á mótinu og tryggði Ísland sér því 19. sætið með sigrinum.
Fréttaritari Körfunnar í Austurríki spjallaði við leikmann liðsins Hrund Skúladóttur eftir að leik lauk í dag.