spot_img
HomeNeðri deildir1. deild karlaHornfirðingar unnu í Dalhúsum

Hornfirðingar unnu í Dalhúsum

Sindri lagði Fjölni í æfingaleik í gærkvöldi í Dalhúsum, 90-97, en bæði lið undirbúa sig þessa dagana fyrir upphaf fyrstu deildar karla sem hefst um næstu mánaðarmót. Líkt og tölurnar gefa til kynna var nokkuð jafnræði á með liðunum lengi framan af leik, en góður endasprettur Hornfirðinga innsiglaði sigurinn fyrir þá.

Stigahæstur í liði Fjölnis í leiknum var Lewis Diankulu með 19 stig. Þá skilaði Hornfirðingurinn og fyrrum leikmaður Sindra Birgir Leó Halldórsson 14 stigum og Sigvaldi Eggertsson 12 stigum.

Fyrir Sindra var Gísli Þórarinn Hallsson stigahæstur með 38 stig. Honum næstir voru Donovan Fields með 21 stig og Milorad Sedlarević með 16 stig.

Tölfræði leiks

Fréttir og tölfræði úr æfingaleikjum má senda á [email protected]

Fréttir
- Auglýsing -