spot_img
HomeFréttirHörður og Birna best í Keflavík

Hörður og Birna best í Keflavík

Lokahóf körfuknattleiksmanna í Keflavík fór fram fyrir skömmu og má segja að Hörður Axel Vilhjálmsson hafi sópað til sín verðlaunum. Hann var kosinn besti leikmaðurinn í karlaliðnu og Birna Valgarðsdóttir hjá konunum.
 
Að auki var Hörður valinn besti varnarmaðurinn og þótti hafa sýnt mestu framfarirnar og var í úrvalsliði Keflavíkur ásamt Gunnari Einarssyni, Sigurði Þorsteinssyni, Birnu Valgarðsdóttur og Bryndísi Guðmundsdóttur.
 
Bryndís var einmitt valin besti varnarmaðurinn og Eva Rós Guðmundsdóttir hafði sýnt mestu framfarirnar.
 
 
 
Mynd: www.keflavik.is/karfan
Fréttir
- Auglýsing -