Ísland lagði Lúxemborg í dag í forkeppni undankeppni heimsmeistaramótsins 2023 í Pristina í Kósovó, 84-86. Ísland hafði fyrir leikinn tryggt sér sigur í riðlinum, en næsti fasi undankeppninnar fer af stað í ágúst á þessu ári.
Einkunnir Íslands gegn Lúxemborg
Sjáðu sigurþrist Elvars gegn Lúxemborg
Karfan spjallaði við Hörð Axel Vilhjálmsson, leikmann Íslands, eftir leik í Pristina. Hörður lék virkilega vel í þessum fasa undankeppninnar, skilaði 11 stigum, 5 fráköstum og 4 stoðsendingum að meðaltali í leik.