Hörður Axel Vilhjálmsson spilaði líkast til sinn besta leik í vetur með liði MBC í þýsku úrvalsdeildinni þegar kappinn setti niður 18 stig í leik gegn Artland Dragons. MBC sigraði leikinn 87:83. Auk þeirra 18 stiga sem Hörður setti þá hrifsaði hann til sín 6 fráköst og sendi 4 stoðsendingar. Á heimasíðu BEKO deildarinnar er að vinna video með nokkrum glefsum úr leiknum auk viðtals við Hörð. Hörður var ekkert að skarta þýskunni sinni heldur tók bara enskuna á þetta og var þar af leiðandi þýddur.