Undir 16 ára stúlknalið Íslands mátti þola tveggja stiga tap í gær gegn Bosníu og Hersegóvínu í fyrsta leik sínum á Evrópumótinu í Konya í Tyrklandi. Leikurinn var sá fyrsti sem liðið leikur í riðlakeppni mótsins, en næst leika þær í dag föstudag kl. 13:30 gegn Eistlandi.
Fréttaritari Körfunnar í Tyrklandi heyrði í Hólmfríði Eyju Jónsdóttur og Tinnu Diljá Jónasdóttur leikmönnum liðsins og ræddi við þær um leikinn gegn Bosníu, leikinn gegn Eistlandi í dag og aðstæður í Konya.