Það á ekki að hafa farið fráhjá neinum að Högni nokkur Egilsson, betur þekktur sem Högni í Hjaltalín, reif fram körfuboltaskóna að nýju og smellti niður þrist í leik Vals og KR í Lengjubikarnum í síðustu viku.
Sjónvarpsþátturinn Ísland í dag hitti á Högna þar sem hann var að sýna Margréti Maack, öðrum stjórnanda þáttarins, nokkur múv en hún var á hælaskóm. Við hlökkum til að fylgjast með Högna og Val í vetur og vonumst til að sjá hann í fleiri leikjum.
Mynd: Skjáskot úr innslagi Íslands í dag