{mosimage}
(Pau Gasol gerði 21 stig fyrir Spán í dag í stórsigri gegn Japönum)
Riðlakeppninni á HM í Japan lauk í dag og þá er komið á hreint hvaða lið munu mætast í 16 liða úrslitum keppninnar sem hefst á laugardag með fjórum leikjum og lýkur á sunnudag með öðrum fjórum.
Það voru Evrópumeistarar Grikkja, Spánverjar, Bandaríkin og Argentína sem fóru upp úr riðlakeppninni taplaus.
16 liða úrslitin eru eftirfarandi:
26.ágúst:
Ítalía – Litháen
Argentína – Nýja-Sjáland
Spánn – Serbía
Tyrkland – Slóvenía
27. ágúst:
Frakkland – Angóla
Grikkland – Kína
Þýskaland – Nígería
Bandaríkin – Ástralía