Hlynur Bæringsson hefur gengið frá samkomulagi við sænska körfuboltaliðið Sundsvall Dragons um að spila áfram með liðinu á næstu leiktíð.
Hlynur var með 13,8 stig og 9,5 fráköst að meðaltali í leik í 40 leikjum fyrir Sundsvall á síðustu leiktíð. Hann var fimmti í deildinni í fráköstum og var meðal annars valinn í All-Bosman liðið í sænsku deildinni.
Mikilvægt fyrir Sundsvall að tryggja sér Hlyn fyrir næstu leiktíð en þeir misstu frá sér Jakob Sigurðarson, annan stigahæsta leikmann liðsins, sem samdi við Borås Basket í vor.