Hjalti Vilhjálmsson var sáttur með leik sinna manna eftir sigur á toppliði Þórs Akureyri. Hann lagði upp með að keyra á þá en í seinni hálfleik voru Fjölnismenn farnir að hitta úr stórum skotum fyrir utan einnig. Hann segir menn mega fagna í kvöld en síðan er bara áfram gakk og næsti leikur í Sandgerði.