spot_img

Hjá Keflavík til 2027

Jaka Brodnik hefur samkvæmt tilkynningu félagsins samið við Keflavík til næstu þriggja ára.

Jaka hefur verið einn af lykilleikmönnum Keflavíkur frá því hann samdi fyrst við liðið fyrir tveimur árum. Samkvæmt tilkynningunni hefur hann komið sér vel fyrir í bænum og unir fjölskylda hans hag sínum vel þar.

Eftir að samningar voru í höfn sagði Jaka “Það er mér og minni fjölskyldu mikil ánægja að vera búinn að skrifa undir. Okkur líður afar vel hér í Keflavík, umgjörð eins og hún gerist best og þetta er okkar heimili. Ég hlakka til að taka slaginn áfram með Sunny Kef, það eru spennandi tímar framundan. Við ætlum okkur alla leið í keppninni sem nú er í gangi og næstu ár verða afar áhugaverð.”

Fréttir
- Auglýsing -