Undir 18 ára lið Íslands tapaði í dag stórt gegn Ísrael í lokaleik C-riðils B-deildar Evrópumótsins, 92-60. Tapið þýðir að Ísland endar í fjórða sæti riðilsins.
Ísrael var betra liðið allan leikinn í dag en Ísland hékk í skugganum á liðinu í fyrri hálfleik. Andstæðingar Íslands stungu svo af í seinni hálfleik og unnu að lokum 92-60 sigur. Stigahæstur hjá Ísrael var Dani Avdija sem var á dögunum valinn í úrvalslið A-deildar evrópumóts U20 landsliða og því um gríðarlega efnilegan leikmann að ræða.
Fréttaritari Körfunnar í Makedóníu spjallaði við Hilmar Pétursson eftir leik í Skopje.