Stjarnan lagði heimamenn í Val í kvöld í Subway deild karla, 74-78. Eftir leikinn eru liðin jöfn að stigum í 4.-5. sæti deildarinnar, en Valur á innbyrðis viðureignina og eru því í efra sætinu.
Karfan spjallaði við Hilmar Smára Henningsson leikmann Stjörnunnar eftir leik í Origo Höllinni. Hilmar átti flottan leik fyrir sína menn í kvöld, skilaði 19 stigum, 3 fráköstum, 2 stoðsendingum og 4 stolnum boltum á tæpum 34 mínútum spiluðum.