spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaHilmar Smári atkvæðamikill í enn einum sigurleik Valencia í EBA deildinni

Hilmar Smári atkvæðamikill í enn einum sigurleik Valencia í EBA deildinni

Hilmar Smári Henningsson og ungmennalið Valencia lagði í kvöld lið CB Aldaia í EBA deildinni á Spáni, 51-86. Eftir leikinn er Valencia sem áður á toppi E-A hluta deildarinnar með ellefu sigra og eitt tap það sem af er tímabili.

Hilmar var sem áður mjög atkvæðamikill fyrir Valencia í kvöld. Á tæpum 24 mínútum spiluðum skilaði hann 14 stigum, 7 fráköstum, 2 stoðsendingum og 3 stolnum boltum. Liðið nú komið í gott jólafrí, en næst leika þeir gegn Inalco Alcora Caixa Rural þann 9. janúar.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -