spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaHilmar Pétursson til Blika

Hilmar Pétursson til Blika

Hilmar Pétursson hefur samið við Dominos deildar lið Breiðabliks um að leika með liðinu á næstu leiktíð. Hann kemur frá liði Hauka þar sem hann er uppalinn. Hilmar byrjaði síðasta tímabilið með Keflavík og var með sex stig, tvær stoðsendingar og tvö fráköst að meðaltali í leik fyrir Keflavík. Hann lauk tímabilinu með Haukum.

 

Í fréttatilkynningu Breiðabliks segir: "Þessi bráðefnilegi og kornungi leikmaður sem fæddur er árið 2000 varð á dögunum Íslandsmeistari með Haukum í drengjaflokki, þar sem hann skoraði 30 stig, hirti átta fráköst, og gaf þrjár stoðsendingar í úrslitaleik gegn KR. Þá var Hilmar valinn leikmaður úrslitaleiksins.

 

Það er gaman að segja frá því að Hilmar Pétursson er sonur Péturs Ingvarssonar, nýráðins þjálfara Breiðabliks. Er þetta ekki í fyrsta skipti sem Hilmar spilar fyrir pabba sinn, en hann var lykilleikmaður hjá Hamri í 1. deildinni tímabilið 2016-2017 þar sem þeir feðgar fóru alla leið í oddaleik gegn Val í úrslitaeinvíginu um sæti í Dominosdeildinni það árið.

 

Engin þörf á að birta „kvót“ frá þjálfaranum í þetta skiptið, við gefum okkur það að hann sé hæstánægður með nýjasta leikmann Breiðabliks.
Við hjá Körfuknattleiksdeild Breiðabliks bjóðum Hilmar hjartanlega velkominn í Kópavoginn."

 

 

Fréttir
- Auglýsing -