Hilmar Pétursson og Munster lögðu Artland Dragons í kvöld í Pro A deildinni í Þýskalandi, 77-92.
Hilmar lék rúmar 24 mínútur í leiknum og skilaði á þeim 6 stigum, frákasti, 7 stoðsendingum og 3 stolnum boltum.
Munster eru eftir leikinn í 8. sæti deildarinnar með átta sigra og sex töp það sem af er tímabili.